Fréttir

 Viktor á Meistaramót Íslands 15-22 ára

Viktor á Meistaramót Íslands 15-22 ára

03.02.2023 2023 frjalsar

Viktor Ívan Vilbergsson tók þátt í Meistaramóti Ísland 15-22 ára í frjálsum íþróttum sem fór fram í Kapplakrika um liðna helgi (28. og 29. janúar). Viktor fór ásamt 2 öðrum keppendum og þjálfara frá Hetti en þau keppa undir merkjum ÚÍA. Veðrið var að stríða þessa helgi og ekki hægt að halda flugáætlun. Viktor missti því af fyrstu keppnisgrein sinni á laugardaginn en náði 2 greinum. Hann stóð sig vel, var fyrstur í 800 metra hlaupi og þriðji í 4oo metra hlaupi á persónulegu meti. Til hamingju með árangurinn Viktor!

Engin ummæli enn
Leit