Aðalfundur UMF Leiknis 2020

Fundargerð aðalfundar UMF Leiknis 22.08.2020

Boðað var til aðalfundar að Grímseyri 7, laugardaginn 22.8.2020 kl. 10:00 árdegis. Í ljósi aðstæðna v. COVID-19 var stefnt að fámennum fundi. Það tókst og mættir voru: Steinn Jónasson, Gunnar Geirsson, Dagný Hrund Örnólfsdóttir, Tania Lí Mellado, Þórunn M. Þorgrímsdóttir, Birkir Snær Guðjónsson og Magnús Ásgrímsson. Gengið var til darskrár skv. lögum félagsins:

1. Fundinn setti formaður, Steinn Jónasson 

2. Kosning fundarstjóra og ritara. 
Fundarmenn samþykktu samhljóða Stein Jónasson sem fundarstjóra og Gunnar Geirsson sem fundarritara.

3. Skýrsla stjórnar. 
Formaður, Steinn Jónasson las upp skýrslu stjórnar. Þar bar hæst einstakur árangur kattspyrnuliðs Leiknis sem varð deildarmeistari og vann sig upp í 1. deild. Fram kom að Smári Geirsson er að rita sögu Fáskrúðsfjarðar og var formaður í góðu samstarfi við Smára v. tengsla Leiknis við þá sögu. Voru Smára afhent gögn frá upphafsdögum félagsins til að vinna úr. Fram kom að Steinn og Gunnar hafa skannað mikið magn af myndum sem Leikni voru afhentar sem áður voru í eigu Stefaníu Ingólfsdóttur og Hákonar Magnússonar. Um er að ræða mikinn fjölda mynda úr starfi félagsins og er von til þess að skönnun ljúki í haust og myndirnar verð aðgengilegar á heimasíðu félagsins, leiknirf.is. 
Þá skal getið sögunnar endalausu; samskipti við yfirstjórn Fjarðabyggðar varðandi endurbætur á íþróttaaðstöðu á Fáskrúðsfirði. Er skemmst frá því að segja að ekkert hefur áunnist í þeim málum frá sameiningu Austurbyggðar og Fjarðabyggðar 2006. Knattspyrnuvöllurinn er ónothæfur sem og aðstaða til frjálsíþróttaiðkunar s.s. stökkgryfja og kasthringur. Á árinu 2010 lofuðu yfirvöld nýjum gámi fyrir áhöld á vallarsvæði. Það loforð er enn bara loforð, tíu árum seinna. Á fundi með fulltrúum bæjarins var einnig lofað smávægilegum úrbótum í sundlaug, sama sagan þar. Þess má geta að vegna bilunar varð að loka sundlauginni lungann úr júlí á þessu ári. Þegar þeirri viðgerð lauk, tók við hefðbundin sumarlokun! Ekki verður hjá því komist að nefna hér að sú sérkennilega staða er uppi að bæjarfélagið er nánast í beinni samkeppni við frjáls íþróttafélög um rekstur meistaflokks í knattspyrnu, m.a. um auglýsingatekjur. Jafnframt eru fjárveitingar til umrædds félags mjög ógegnsæjar og má í því samhengi nefna að nú í vor sendi þetta félag enn eina beiðnina um aukafjárveitingu og í fundargerð var sú umfjöllun merkt „trúnaðarmál“ sem hlýtur að teljast sérkennilegt á þessum tímum gegnsæis og opinnar stjórsýslu. 
Þá skal fagnað framtaks einstaklinga og fyrirtækja hér í bæ varðandi uppbyggingu fjölbreyttra leiktækja í Skrúðgarðinum og almanna notkun þeirra. 
Að lokum skal minnst á þreksalinn í íþróttahúsinu sem Leiknir á og rekur. Þar hefur Ingólfur Hjaltason haldið um taumana af miklum myndarskap með aðstoð Ölvers Jakobssonar.

4. – 6. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins, deilda og skýslur deilda 
Skemmst er frá því að segja að staða allra deilda Leiknis er vel viðunandi. Allar deildir voru reknar með hagnaði nema knattspyrnu- og sunddeild. Tap sunddeildar nam liðlega 26.000 kr. og tap knattspyrnudeildar liðlega 3,4 milljónum og helgast það aðallega af miklum ferðakostnaði. Veltufjármunastaða allra deilda er með ágætum og skuldir engar eða óverulegar. Voru reikningar allra deilda samþykktir samhljóða. Fulltrúar deilda lögðu fram skýrslur deildanna og fóru yfir strafsemi sl. árs.

7. Inntaka nýrra félaga. 
Engin athöfn fór fram undir þessum lið.

8. Lagabreytingar 
Engar tillögur um lagabreytingar höfðu borist.

9.Félagsgjöld ákvörðuð 
Í samræmi við áralanga hefðir voru engin félagsgjöld ákvörðuð.

10. Kosning formanns, annarra stjórnarmann og skoðunarmanna reikninga. 
Allir stjórnarmenn og skoðunarmenn reikninga voru endurkjörnnir með samhljóða atkvæðum fundarmanna.

11. Önnur mál. 
Fram kom að í tilefni 80 ára afmælis Leiknis á þessu ári, samdi Afmælisnefnd við íþrótta vöruverslunina Sport 24 á Akureyri um kaup á Nike bolum með merki félagsins og áletruninni „80 ára“ Mikil eftirspurn hefur verið eftir bolunum, en afhending þeirra hefur tafist vegna Covid 19. Borið hefur á óþolinmæði sumra kaupenda, en þeim hefur vinsamlegast verið bent á að um heimsfaraldur er að ræða, sem valdið hefur því að sendingar milli landa hafa tafist verulega og eru Afmælisnefndinni óviðkomandi.

Mjög skortir á að endurnýjun og kaup á áhöldum til íþróttaiðkunar og íþróttakennslu sé með viðunandi hætti og ekki eðlilegt að UMF Leiknir standi undir kaupum á stórum hluta þeirra. Vegna aukinnar þátttöku í fimleikum hefur tækjum og tólum vegna þeirrar iðkunuar fjölgað að undanförnu. Nú er svo komið að veruleg vandræði hafa skapast vegna geymslu þeirra, ásamt öðrum áhöldum. Leysa þarf úr geymsluaðstöðu hið snarasta.

Formaður lagði fram þrjár tillögur að ályktun fundarins og voru þær allar samþykktar.

I. Ályktun: 
Aðalfundur UMF Leiknis, haldinn að Grímseyri 7, þann 22. ágúst 2020 fagnar ákvörðun Bæjarráðs að láta gera faglega úttekt á rekstri íþrótta- og æskulýðsmála hjá Fjarðabyggð.​ 

Greinargerð: ​ 
Nauðsynlegt er að algerlega óháður aðili sjái um verkið, þannig að ekki myndist tortryggni um væntanlegar niðurstöður.Ljóst er að mikil mismunun hefur átt sér stað varandi stuðning sveitarfélagsins Fjarðabyggðar við íþróttastarf í sveitarfélaginu, ekki eingöngu varðandi fjárstuðning heldur einnig að því er snertir viðhald og uppbyggingu íþróttaaðstöðu í byggðakjörnunum.

II. Ályktun: 
Aðalfundur UMF Leiknis, haldinn að Grímseyri 7, þann 22. ágúst 2020 skorar á bæjarstjórn Fjarðabyggðar að huga betur að Sundlaug Fáskrúðsfjarðar. ​​ 
Greinargerð: ​
​ Sundlaugin er mjög mikilvæg í starfi Sunddeildar UMF Leiknis og er ljóst að lokanir í tíma og ótíma eru ekki hvetjandi fyrir þá sem sundíþróttina stunda. Vegna bilunar var laugin lokuð í júlí nú í sumar og þegar viðgerð var lokið tók við mánaðar lokun í ágúst. Þetta eru að sjálfsögðu ekki ásættanleg vinnubrögð. ​

III. Ályktun: ​ 
Aðalfundur UMF Leiknis, haldinn að Grímseyri 7, þann 22. ágúst 2020 skorar á bæjarstjórn Fjarðabyggðar að ganga frá nánasta umhverfi Íþróttahússins á Fáskrúðsfirði. ​ ​ 

Greinargerð: ​ 
Íþróttahúsið á Fáskrúðsfirði er glæslileg bygging og hefur frá upphafi mikið verið nýtt af heimamönnum sem og öðrum íbúum Fjarðabyggðar eftir sameiningu s.s. vegna fimleikakennslu, notkun þreksalar ofl. Norðan við aðalinngang þarf að laga nánasta umhverfi og koma malbiki á Óseyri sem er vegur að húsinu að ofanverðu. Af honum berst mikið af sandi inn í húsið. Einnig þarf að gagna frá mel austan við húsið. Göngustígur liggur að húsinu ofan frá Skólavegi, sem aðallega er notaður af skólabörnum á leið frá skóla að íþróttahúsi. Einhverra hluta vegna vantar u.þ.b. 10 metra til að tengja stíginn við Skólaveginn.

IV. Ályktun: 
Aðalfundur UMF Leiknis, haldinn að Grímseyri 7, þann 22. ágúst 2020 beinir því til á bæjarstjórnar Fjarðabyggðar að lengja opnunartíma íþróttahússins á Fáskrúðsfirði til samræmis við önnur sambærileg mannvirki í Fjarðabyggð. ​ ​

Greinargerð: 
Opnunartími íþrótthússins á Fáskrúðsfirði er verulega skertur miðað við önnur íþróttahús í Fjarðabyggð og því takmarkaður aðgangur að aðstöðunni. ​ ​ 
Þar með var dagskrá tæmd. ​ 

Fundi slitið kl 12:10

Gunnar Geirsson, fundarritari.
Leit